Never Regret Something That Once Made You Smile!
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
27.02.2008 01:46:15 / MYZLAN

Strokufanginn mikli !

Góðan og blessan Daginn. Eða ætti ég að segja góða nótt öllu frekar, því að klukkan er orðin svo margt.
Ég var að skoða Gamallt blogg af þessari síðu, vá var ég þroskaheft eða? hahah. Þetta er alveg útúr hróa og kommentin frá Margréti. JéduddaMía. Við erum alveg ótrúlegar.

En ég gleymdi alltaf að segja frá því að ég er komin með nýja síðu ! 8)
Og ef þú vilt vita hana, þá er ekkert annað en að biðja Fallega :)
Nei Nei. Slóðin er

www.tinnavic.bloggar.is

:) vonandi að maður verði duglegri að blogga. Er bara svo fokk léleg í þessum bransa. Og kann lítið sem ekkert á þetta. Hvað þá á blogcentral eftir breytingu, ég villtist inná þessu drasli. Svona er þetta bara, þetta fer bara ekki öllum.

Blablablablabla. ég er bara þreytt hérna og nenni ekki að sofa, er að spjalla við hana Margréti mína á msn og erum að skoða gamallt drasli og rifja upp. Hvernig steikistu ? 8)

Maggi minn er úti í Kína, veikur, greyið ástin mín8|. Samt stollt af honum að keppa þótt hann sé veikur. Ég er alltaf stollt af þessu kvikindi...

Ég er bara búin að hanga endalaust með Dominiku og Kristínu og erum við alveg krúsibúsivúsi miklar steikur.

En ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er á lífi. og er búin að færa mig yfir á bloggar.is þannig endilega kíkjið þangað og kvittið fyrir viðkomuna !

knús og kossar

Ykkar Tinna Holt Victorsdóttir :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 22:14:24 / MYZLAN

Tinna Lasarus

Sæl. Langaði bara að blogga yfir seinasta blogg.

En ég er búin að vera rúmföst síðan á laugardaginn.

Búin að horfa endalaust á video myndir sem sæti kærastinn minn kom með handa mér

Ekkert borðað siðan á sunnudag, nema smá af jógurt og smá sprite. 

Sem maggi færði mér.  heppin að eiga svona góðan kæró;*

 

en núna er etta blogg buið

enda þetta á myndum af glæsipíum :D haha

79181564_10.jpg

ætli þeim finnist ekki erfitt að labba eða lyfta hlutum..? :(


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 19:22:20 / MYZLAN

ókei ég ekki skilja.

Góðan Daginn !

Ég var að pæla í því að ég er ekkert svakalega góð í því að blogga, frekar leiðinleg blogg og ég er alltaf svo mikið að flýta mér í því að blogga eða að gera margt í einu að þau eru bara voðalega sérstök og eintóm. Þannig ég þarf að fara að breyta því.. samt má ég nú ekki hugsa of mikið, því að þá kveiknar í litlu bauninni minni í heilanum mínum. ekki væri það nú gott.!

En það sem liggur mér á hjarta er aðallega þetta ÍFÍ eða Ísland fyrir Íslendinga. Talandi um að allir pólverjar eða útlendingar séu slæmir og séu að skemma ísland og svona, en hvað eru þeir að sýna með þessu félagi ?  það sem mér finnst er óþroski og hræðsla. jújú kannski eru sumir algjörir skæruliðar og það er alveg margar ástæður þess að vera hræddur ef þú ert alein niðrí bæ. Margir þeirra eru að leita af vandræðum og leiðindum en svo eru aðrir sem eru Bestu sálir og eru að læra íslensku og vinna til að halda sér á eðlilegum kjörum.

Það sem Ríkið þyrfti að gera væri að skoða hvern einn og einasta útlending áður en honum er hleypt inní landið, skoða þess vegna sakaskrá þeirra.Held samt að þeir eiga í erfiðleikum með að sjá sakaskrá þeirra í sumum löndum. Ætti að Láta þá kannski taka próf um íslensku eða ensku. Sumir útlendingar kunna ekki einu sinni ensku né íslensku og geta ekkert reddað sér ef þeir skyldu slasast eða veikjast og þurfa að fara á sjúkrahús.  En samt sumir útlendingar eins og t.d. Litháar kunna að slást og ráðast á lögregluna bara. Ekki væri ég til í að vera Lögregla, nema kannski á Patró:) haha ...

En Eitt Fannst Mér Þó Ótrúlega Flott Og Sýndi Ótrúlegan Þroska, er það að hún Dominika mín hringdi í blaðamann Dv ótrúlega miður sín og tók hann viðtal við hana og Viðtalið er svo flott að ég fékk næstum tár, ég var ekkert smá stollt af henni Dominiku minni :) :*

En já svona er nú þetta. En nóg komið af þessu.

En það sem er að frétta af mér er....

  • við Maggi erum búin að vera saman í ár :) hann gaf mér ótrúlega flottan hring og nærföt :) :* :*
  • ég er búin að vera rosalega dugleg að vinna í JóaFel. Vann alla og þar seinustu viku og í dag og verð svo að vinna frammá fimmtudag .
  • Maggi fer til Kína 18 feb og verður í 2 vikur. það verður erfitt :(
  • Ég er að missa mig í útsölum á myspace :) heheh
  • Mig langar í gítarnám. :)
  • Ég Byrja í fjarnámi á þriðjudaginn næsta. tek 3 fög. :)
  • Er að leita mer að vinnu, en hef ekki leitað mikið, þvi eg er buin að vinna svo mikið.

Ég veit ekki hvað ég á að segja. Vildi bara koma með stærra blogg, þvi Margrét var að segja að þau væru eitthvað að minnka.

En á seinustu helgi var svaka stuð á minni. á föstudeginum fór ég í mat/Afmæli til jón grétars vinar Magga. Svo um 12 sótti Dominiku mig þegar ég var orðin blekuð og fórum við á Glaumbar og Hressó og dönsuðum endalaust..:) og á laugardeginum fór ég svo í innflutningspartý til Huldu, Erlu og Sæunnar með Dominiku og Kristín Ósk. var drukkið mikið þar og tekið endalaust af myndum og svo eftir partýið fórum við á Glaumbar en svo fór ég heim bara snemma eða um 3 til Magga.:)

En þetta er komið nóg :)

ég á föst, gleymdi mér í samræðum þegar ég var að púðra mig og endaði svona :D hahahahaa :) já aldrei mála þig þegar þú ert í glasi, hættulegt.

Hulda&Erla að opna pakkann frá mér og Dominiku.

Kristín, ég og Dominika

Ég og Dominika.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 19:40:22 / MYZLAN

How do you like Iceland ?

HOW DO YOU LIKE ICELAND ? :D

27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase="<a href=" width="450" height="370">

<object width="450" height="370" classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase="http://fpdownload.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=8,0,0,0"><param name="movie" value="http://www.dv.is/divi/embed/?file=http://www.dv.is/divi/xml/duuopeoal8aq82gbnj8guku3yg6mx9/playlist.xml"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed width="450" height="370" src="http://www.dv.is/divi/embed/?file=http://www.dv.is/divi/xml/duuopeoal8aq82gbnj8guku3yg6mx9/playlist.xml" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent"></embed></object>

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 19:05:56 / MYZLAN

1 ár, 12 mánuðir, 52 vikur, 365 dagar :)

Góðan Daginn. Vildi bara njóta þess með ykkur að í Dag 16 janúar er nefnilega 1 ár, síðan ég og Magnús minn byrjuðum í sambandi :) Það er ótrúleg tilfinning og er ég súper ástfangin :D

En langar bara að láta ykkur vita svo að þið getið samgleðst okkur :D hehe :*

Knús í tætlur :*

                             við á Hróarskeldu :D

                                      við í afmæli fyrir ári.

                            við í september. :D

ELska þig Magnús Kristinn Magnússon :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 19:26:41 / MYZLAN

Hún er fundin.

ÆTlaði bara að skrifa að hún Ástríður Rán væri fundin.....

EN ég er hress.

En samt með verki í löbbunum eftir mjög ánægjulegan vinnudag :)

En ætla að fara að sprengja með Magga afganginn af draslinu síðan um áramótin.

Það er sko allt brjál hérna úti. Örn Árnason spaugstofukall býr hérna fyrir neðan og hann er að missa það í flugeldum.  Omæææ....

En gleðilegan síðasta dag í jólum og knús í klessu.. ;*

 

ég með systkinum mínum og MAgga :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 20:01:57 / MYZLAN

Tilkynning.

Lýst eftir 15 ára gamalli stúlku

mynd
Ástríður Rán Erlendsdóttir.

 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ástríði Rán Erlendsdóttur. Ástríður er 15 ára, rauðhærð með permanett. Hún er um 160 sentimetrar á hæð og líklega í svartri dúnúlpu. Hún fór frá heimili sínu í Hafnarfirði þann 2. janúar síðastliðinn um klukkan 22.

Þeir sem vita um ferðir Ástríðar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 20:28:36 / MYZLAN

Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ar :)

Sælt veri fólkið :) ég ætla bara að óska hér með öllum gleðilegra jóla og farsælt komandi nýtt ár og ég þakka bara allt það liðna :)

Jólin hjá mér hafa verið ofsalega fín :) kom vestur á föstudagskveldið, þar sem við vorum stoppuð af lögreglunni. en það var nú samt ekkert. svo var komið heim og borðað og svona :D Maður hefur svo bara verið í rólegheitum. sofið og borðað og svona. Nema í dag þá skelltum við okkur öll hérna á brunnum15 í göngutúr og kaffæringu.. :/ litlu systkini manns eru ekkert lítil lengur. :(

 19,13,10. árin

En ég fékk margt flott í jólagjöf í ár :D :D ofsalega ánægð.   ÉG fékk geðveikt flotta úlpu og converse skó og svo ótrúlega fallegt hálsmen sem ég fékk á undan jólnum frá Magga mínum. Svo frá Mömmu og Pabba fengum við Maggi sitthvoru náttbuxurnar og Dvd spilara :D :D Frá Pabba mínum fékk ég pening. Frá afa fékk ég pening. Frá Ömmu fékk ég gjafabréf í kringluna. frá önnu og rabba fékk ég maskara, gloss og úr. frá MömmuogPabba Magga fékk ég 3 boli og 1 peysu. Frá Dominiku fékk ég HjartaBLINGBLING eyrnarlokka og belti. frá Margréti fékk ég Hring og svoo fékk ég margt fleira :) :) :)

Á laugardagskveldið var skellt sér á ball.. :) það var fínt. við tókum myndavélina með á ballið en hun var biluð en svo þegar eg kom heim af ballinu, þá gat eg lagað hana, fífl. :(  En það er samt nóg af myndum af mér og möggu fyrir ballið.. haha

 

En á Laugardaginn förum við Maggi aftur suður og verðum yfir áramótin í Rvk. Sem verður mitt fyrsta skiptið ekki á Patró yfir jólahátíðina.. :$8| En ég hlakka bara til yfir að prufa annað, þó það hefði verið gaman að vera á patró :) :) maturinn og djammið heima klikkar ekki. 

En ég er alveg frosin og agnes er buin að setja endalaust af teppum utan um mig, svo að ég get varla skrifað lengur, svo að þessu bloggi er lokið...

Hafið þið gott :*  

maggi&eg að bíða eftir því að borða skötu.

----------------------------------   Tinna Holt ---------------------------------------------------


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 21:11:23 / MYZLAN

Fimmtudagurinn 13 desember 2007

Góða kvöldið í dag er fimmtudagurinn 13 desember :D á morgun tek ég mitt síðasta próf í landafræði og fer einnig á skrall með henni Dominiku minni :)  vúhúú

Það er svo óendanlega kallt úti, ég er alveg frosin heima, fullum fötum kúrandi undir sæng eins og púpa en samt frosin. :( Hata kulda, því ég er Kuldafengin. veit ekki hvort að þetta er til, en litli frændi Magga, hann Ágúst segist vera svona Heitfenginn og ég er andstæðan. get ekki útskýrt þetta betur :)

Í dag lagði ég leið mína á hárgreiðslustofuna Mólikúl og lét lita hár mitt dökkt og var tekið vel af því. ég fékk bara svona augu þegar ég sá öll hárin á gólfinu.8| Borgaði 11.600 fyrir litun og klippingu og ég er ánægð. :D

En þessi síða mín er ekki alveg sú líflegasta né koma færslurnar á færibandi. maður þarf nú að fara að gera eitthvað í því, en letin er alveg að gera útaf við mann í þeim málum. ;) upptekin manneskja skal ég segja yður :D

Ég hef engar fréttir að færa, þannig ég er bara uppiskroppa með umræðuefni, er eitthvað svo voðadauð í hausnum, enda um svo margt annað að hugsa, eins og til dæmis, hvað ég eigi að gefa Magnúsi, það er endalaust erfitt. og ég er alveg mát. :(  Er búin með smá part til mömmu og pabba. ekkert annað.

Svo var ég að fá mér nýtt sléttijárn :) sem er bara nokkuð gott, það er kannski ekkert gott, bara betra en mitt gamla, ég veit ekki. Ég hef aðeins prufað það einu sinni og þá nennti ég ekki að slétta það og gerði bara aðeins framan á og á hlið, ekkert undir og hárið mitt var hið fínasta. :D

En er að pæla að klára að læra, þarf að finna eitthvað samband, evrópusamband og finna höfuðborgirnar og fánana í öllum löndunum. verst að litli bróðir minn sé ekki hérna, hann kunni þetta þegar hann var 4 ára með því að spila fótboltaleiki í nintendotölvu:D hah

 En ég heyri í ykkur og gangið þið hægt um gleðinnar dyr :* dökkahárið :)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 00:51:15 / MYZLAN

jólin, jólin allstaðar, með jólagleði og gjafirnar :D

Halló litlu froðuheilar..

ég er orðin alveg gúgú af þessum lærdómi. :D í verðlaun fyrir það ætla ég í litun og plokkun og lita hár mitt DÖKKT á fimmtudaginn :) allt að gerast....

En vá eg ætlaði að koma með svaka færslu :D en eg man bara ekki hvað hun átti að vera um.

En já Facebook og Myspace eiga allan minn hug, þegar ég kemst á netið.

 

uu. familian kom suður um helgina:D og ég hitti þau eitthvað smáaa á laugardeginum eftir vinnu. Gaf þeim 2 fulla poka af bakkelsi úr jóafel:D og fékk 2 boli og naflalokk frá spain:D ótrúlega flott ;D

En ég er bara mát :D Reyni að koma með blogg braðlega með einhverju í...

En til hamingju allir, þið hafið lesið tilganglausasta blogg ykkar hingað til :D

knús í klessu :D

ein gömul af okkur síðan úr unufellinu :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 16:19:16 / MYZLAN

Wanna buy some luuuuuv ? ;)

Hellóóóóóóóóóó í dag fékk þá frábæru hugljómun að blogga um hana Alexöndru frænku mína sem ég elska svoo ótrúlega mikið !

Hún Alexandra er mér sem ljós í myrkri og á sér sérstakan stað í hjarta mér. ENDA KOMUM VIÐ AF SAMA FÓLKINU !!!

 ættarsvipurinn ;)

Í sumar þá kom hún mjög oft og spjallaði við mig í albínu og skemmti mér, svo að ég yrði ekki Monsonisti við að vinna með vafasömuliði :) haha

Einu sinni þegar við vorum pínu pons, þá bjuggum við alex, litla systir hennar Melkorka og unnur til fallegan texta við lagið gamla nóa til heiðurs afa okkar. (ekki alvöruafi minn þó;) og vakti það mikla kátínu hjá honum..   (FACE UNNUR AÐ HAFA GLEYMT ALEX í þessu lagi ;D)

En Alexandra Bjánabarn Ég elska þig og ég vona að þetta fái þig til að hlýna um hjartarrætur.....;*

anna ég og alex:*

 KVEðja: Tinna Holt


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 19:44:42 / MYZLAN

Look at the stars, look how they shine for you and everything you do. <3

Sælar, nú er sko harkan í blogginu :D

Ég er bara hress. :D búin að hafa það svoo allsvakalega fínt. Skólinn búinn nema prófin. Fer í 3 próf. íslensku, landafræði og sögu. vonandi að maður nái því nú öllu annars verður bara grenjað úr sér augun.

En Við Maggi skelltum okkur í heilun í gær og aftur í dag og svo aftur á morgun :D voða öðruvisi að prufa svona öðruvisi hluti. :D Var að lesa í bók þarna á meðan maggi var, að maður ætti að hugsa allt svo jákvætt og senda kærleik til allra þeirra sem maður myndi ekki þola. Einnig ef þú værir að þrífa, þá ættirðu að finna staðinn þar sem væri sem mest drullu t.d. bak við eldavélina og hugsa um þetta sem eitthvað annað og þrifa þetta með ástúð :D haha já ég er kannski með brenglað ímyndunarafl.. svo var ég eitthvað að prufa svona að ímynda mér rós og sá litinn og allt. átti líka að finna lykt. en fann samt enga. hélt fyrst að ég fyndi en held samt ekki. :D svo á að vera hægt að finna út hvað hin manneskjan er að pæla um mann. t.d. ef maður einbeitir sér geðveikt að manneskjunni, svo ferðu allt í einu að pæla um peningavandamál. og þá var manneskjan bara að pæla það. hhaha. æj þetta er steikt :D

En já ég veit ekki hvað skal segja. :)

Ég er Búin að panta mér klippingu á molikúl :D er að pæla að verða dökkhærð again :D

megið endilega segja mér hvort fari mér betur ;D

 

 blond

rauðhærð or sum.

brúnt .

svart

 

elskjúuú ;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 15:43:22 / MYZLAN

Unnur var að kyssa jólasveininn :O *gossip*

sælar nú :)

Í dag kemur bara eitt lítið og sætt blogg um hana Unni Eddu, með nokkrum skemmtilegum myndum af henni :)       

En Unnur Edda Björnsdóttir er lítill vitleysingur frá Stykkishólmi, fædd 89 og er litla frænka mín :D Hún er að taka þátt í Bubba bandinu og ætlar að vinna svo að við getum báðar orðið frægar. :D  of löng saga skoo ;)

hún að syngja fyrir Búbbaling :D

Svo er hún Unnur eða UnzaPunz, á föstu með kaggli sem heitir Mundi, Brundi. og þetta eru þau á sólríkum degi. :D

 besta myndin af þeim sem ég fann ;)

svo voru þau að fá sér lítið barn / hund sem heitir SALSA :D sjáið hvað hann er sætur --> heheh fann ekki mynd svo að þessi kemur bara í staðinn :D

En já mér þykir ótrúlega vænt um þessa snót. enda litla frænka mín :D og við erum meistarar í í að bulla :D

og ég er búin með þessa greinargerð um hana UnzuPunz :*

elska þig bjáni :*

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 23:24:25 / MYZLAN

Verðandi BorðtennisStjarna :D

Sælar :)

Það er alltaf jafn stutt á milli bloggana hjá mér :) en það er margt og ekkert að frétta af mér. Man ekki hvað var í hinu blogginu, svo að ég kem bara með eitthvað.

Það er lítið sem ekkert af skólanum. :( prófin hjá mér verða búin 5 des eða 10 des. ætla að fá að taka íslenskuna í kvöldskóla. Wish me luck :)

Ég mætti í Fyrsta skiptið á ævinni minni á Borðtennismót. þar sem minn ástkæri kærastasti vann Meistaraflokkin :) ótrúlega stollt af honum .

Daði í öðrusæti, maggi í Fyrsta, daði og stjáni í 3-4 sæti :D

já ég er komin með smá áhuga á þessari íþrótt og er búin að fá tvö boð um þjálfara handa mér. Daði ætlaði að kenna mér eitthvað trick og maggi ætlaði að þjálfa mig þannig ég myndi ná að ´vinna 2 flokk kvenna. búin að fara einu sinni og þa var ég bara að slá bakhönd og frammhönd? æj eg man eki hvað þetta seinna heitir :S

Við skelltum okkur á MenntaskólaBall um daginn á 85 ball :D það var alveg ágætis tilbreyting. :D Vorum ansi skrautleg þar að segja í framan. keyptum eitthvað Glimmerlakk og spreyjuðum yfir okkur öll :D maggi aðeins meir samt. :D haha og allir strákarnir í fyrirpartyinu vildu vera eins glimmeraðir og maggi :D haha

ofsa sæt mynd :D

Svo er ég alltaf að vinna skoo. ýkt dugleg. það er samt ekkert voðagóð laun þannig ég held að eg fái nu ekkert eins mikið og ég er buin að vinna fyrir :( en ég er að fara að vinna klukkan 8 í fyrra málið til svona hálf 5. talið um hörku á Laugardagsmorgni :(

Svo er Birgitta mín komin til landsins, og eg hef eila ekkert gefið mér tima til að hitta hana, hitti hana aðeins um daginn á prikinu og sólon daginn eftir það.. og hun var edrú í bæði skiptið ofsa stoollt af henni, því að ég var það ekki :D haha var buin að vera edrú í næstum mánuð og svo kom náttla þetta 85 ball og ekki ætlaði ég að vera edrú þar... :D neeeiii :D  ég og hun a sólon :D

Svo fer ég heim líklegast svona 21 des :D og Maggi minn ætlar að vera hjá mér fyrir vestan um jólin :):):):):) og svo förum við saman suður um mið jól og verðum hjá honum um áramótin :D ég hlakka ykt til :D ég og maggi á hverfis :D

En komið nóg af mér og mínum.

Sakna allra, sérstaklega fjölskyldu minnar á Patró :***

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 18:33:09 / MYZLAN

31 október 2007

Sælar.

Og tíminn líður svooo hratt. það er nóvember á morgun ! Shiiiiii.. Gaman að sjá hvað maður fær útborgað :D

En já það hefur margt drifið á daga mína síðan ég bloggaði seinast. Ég og Maggi erum buin að kaupa okkur rúm :D sem er helvíti gott rúm :D og svo máluðum við herbergið hans og hann og pabbi hans létu svo parket á gólfið. þannig að núna er það alveg súperfínt :D

duglegi kallinn minn ;)

Margrét kom um daginn suður með Önnu vinkonu sinni og djammaði ég með þeim bæði föst- og laugardag. en eftir það hef ég ekki snert sopa af áfengi. þannig að það eru 2 og half vika síðan þær komu :D

 villidýrin mættt ;*

 

Eg er bara búin að vera í skólanum, sofa, vinna, ræktin og dúllast með Magga.. :D

Átti reyndar ótrúlega skemmtilegt föstudagskvöld með dominiku :D haha Rúntuðum alveg helling og skelltum okkur í pool, þar sem ég skemmti fólki með tilþrifum mínum. :D Ég er sko Meistari í að pikka kúlunni langt útaf borðinu! :D jám svona er etta. Frétti líka að mér hefði verið boðið í landsliðið í Pool :d hahaha . ein gömul af okkur

Svo fundum við spilakassa, þar sem ég vann helling af penge. lét 100 kall í og kom út með 1300 :D  glæsilegt það :D

Svo kom Familian suður á Sunnudag og það var svona Fyrsti Hittingurinn hjá Tengdó og þeim. :D haha það fór ótrúlega vel :D ég var nett stresssuð.. Fyrsta skiptið sem mamma og pabbi hitta foreldra kærasta míns.. :D

Enjámm ég er að fara að vinna eftir rúman hálftíma og ég hlakka alls ekki til . :|:S

En ég held að þetta sé komið meira en nóg af skemmtilegu bloggi :D

Vona bara að ég bloggi bráðlega. veit ekkert hvað ég á að blogga um. Eða það strokast út. en eg heyri í ykkur skellibjöllur og fiskihausar :D

blæblæ :D 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Leitarbox